þankagangur

no day but today...

03.05.2008 13:58:12 / huvra

MSN samtal milli Emmu og Runes 3.maí '08

Emma says:
ertu í vinnunni?
Runes :[ finals! 1:5 says:

Emma says:
ok
Emma says:
hvenær kemurðu heim?
Runes :[ finals! 1:5 says:
þegar ég er búin að vinna
Emma says:
6?
Runes :[ finals! 1:5 says:
hálf
Emma says:
ok
Runes :[ finals! 1:5 says:
amm
Runes :[ finals! 1:5 says:
hvað ertu að spá
Runes :[ finals! 1:5 says:
?
Emma says:
bara pæla
Runes :[ finals! 1:5 says:
oki
Emma says:
I registered you on a website
Emma says:
you have many replies
Emma says:
I'm finding you a husband
Emma says:
I just cannot decide on which one will be best for you
Runes :[ finals! 1:5 says:
ypu did not1
Runes :[ finals! 1:5 says:
!
Emma says:
you've been singe for long enough, I'm taking matters into my own hands
Runes :[ finals! 1:5 says:
when I come home, you are going to finde yourselfe in a death thretenigng situason! just so you know it!
Emma says:
c'mon
Emma says:
the website mysugardaddy.com is a great place to find a guy for you!
Emma says:
NO, sorry
Emma says:
sugardaddyforme.com
Emma says:
So you won't have to work this summer
Emma says:
I'm being helpful
Emma says:
ooooh, Amir wants to take you with him to Islamabad! Won't that be fun!
Runes :[ finals! 1:5 says:
death I tell you DEATH!!!
Emma says:
Oh, Amir is a really nice guy
Emma says:
I told him, of course that you only travel business class
Emma says:
he has no problem with that
Emma says:
why are you so upset?
Emma says:
Ohhh, JP.77 is interested in you
Emma says:
he is HAWT
Emma says:
http://www.sugardaddyforme.com/index.php?page=profile&id=549105
Emma says:
c'mon, don't be upset
Emma says:
I'm finding rich guys for you!

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.04.2008 16:25:15 / huvra

púff

Það er búið að vera  mikð að gera undanfarið.
mér datt í hug að taka þátt í leikriti sedm gerir það að verkum að ég hef ekki átt fríkvöld síðan í desember. Og af hverju sagði manni enginn að þegar maður væei loxins komin í 3ja bekk þá væru kennararnir að missa sig í að setja manni mikið fyrir heima. og svo er þessi ágæris vinna. og vinirnir. úff! og það eru að koma vorpróf!! fekk!


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 19:31:44 / huvra

appelsín í flösku er svalt

Ég hef tekið til á þessu blogi mínu, enda kominn tími til og ekkert af viti gert í henni í meira en 2 ár. Endilega komið með ábendingar ef að ykkur finnst að það megi breyta eithverju.

Annars er ég bara búin að var í skólanum. það eru þrír langir dagar í vikunni og svo er kór og bráðum bætist leikritið við, svo að við tölum ekki um heimanámið. Slater...


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.01.2008 15:23:22 / huvra

ánægjulegt nýtt hlaupár

3.FS

Mánudagur

Þriðjudagur

Miðvikudagur

Fimmtudagur

Föstudagur

8:10 – 9:10


Uppeldisfræði

N3

Íslenska

U7

Enska 583

A7 

Uppeldisfræði

U6

9:20 – 10:20

Enska 423

U8

Franska

U1

Franska

A9

Líffræði

N6

Franska

A1

10:30 – 11:30

Íslenska / Enska 583

N1 / A7

Félagsfræði

U2


Félagsfræði

U2

Félagsfræði

N2

11:30 – 12:00

M

A

T

U

R

12:00 – 13:00

Uppeldisfræði

A9

Enska 423

A7


Franska

A3

Íslenska

N4

13:10 – 14:10

Líffræði

A9

Íslenska

U5

Uppeldisfræði

U3


Líffræði

N6

14:20 – 15:20


Enska 583

A9 

Félagsfræði

U3

Enska 423

A7


15:30 – 16:30


Enska 583

A9 

Líffræði

N6

Enska 423

A7








Þannig er það vorið 2008.

Fleirra sem að verður í gangi hjá mér er t.d. það er ég er í leikarahópnum fyrir leikrit Fúríu.

Er líka að reyna að komast í ensku 583 og hætta í frönsku og fara í staðinn í fjarnám í spænsku.

það eru fimm mánuðir þangað til að ég verð tvítug!

Ég hafði það gott um jólinn. Fékk mikið af heimilsitækjum í jólagjöf. Er mjög kát með það. Elska líka vini mína fyrir það að hafa næstum allir gefið mér bækur í jólagjöf. Uuumm... já ég er að mála herbergið mitt. Var að skipta um herbergi við mömmu og pabba og herbergið sem að þau voru í var herbergið mitt þegar ég var lítil og það vill svo skemtilega til að það er BLEIKT! Já ég var einusinni ung og vitlaus og hrifin af bleiku. En það heyrir brátt sögunni til því núna er loftið mitt grænt og veggirnir fallega hvítir. Eða þeir eru að verða hvítir.

farin að klára að mála 1. umferð...


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 20:10:35 / huvra

Kvennmenn sem þurfa að hlæja og karlmenn sem geta höndlað þetta

Á spítalanum voru ættingjarnir saman komnir á biðstofunni þar sem einn
fjölskyldumeðlimur lá mjög veikur. Loksins kom læknirinn þreytulegur og
dapur. "Ég er hræddur um að ég færi ykkur slæm tíðindi" sagði hann og
horfði upp á áhyggjufull andlit ættingjanna.


"Eina von ástvinar ykkar er sú að hann fái heilaígræðslu. Þessi aðgerð hefur
ekki ennþá verið prófuð til hlítar og er mjög áhættusöm en er jafnframt
eina vonin í þessari stöðu. Tryggingarnar greiða allan kostnað af aðgerðinni
en þið þurfið að greiða sjálf fyrir heilann".


Ættingjarnir sátu hljóðir og meltu með sér þessar fréttir. Eftir dálítinn
tíma spurði einn þeirra. "Hvað kostar heili?" Læknirinn svaraði strax.
"Karlmannsheili kostar eina milljón en kvenmannsheili kostar hundrað og
fimmtíu þúsund".


Allir ættingjarnir urðu frekar vandræðalegir en karlmennirnir
Forðuðust að horfast í augu við konurnar. Nokkrir gátu ekki á sér setið og

Glottu og jafnvel flissuðu. Einn þeirra gat þó ekki hamið forvitni sína og
spurði þeirrar spurningar sem alla langaði að spyrja að. "Af hverju er
karlmannsheilinn svona mikið dýrari"?



Læknirinn brosti umburðarlyndur af einfeldni mannsins og útskýrði þetta
fyrir öllum hópnum. "Þetta er bara þetta venjulega verð sem sett er upp,
við getum ekki selt kvenmannsheila dýrari en þetta því þeir eru
notaðir"!!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.11.2007 17:24:38 / huvra

Félagsfræði 2, kenningar og samfélag

Í dag er sunnudagur. klukkan er 17.09 og ég er raddlaus á kóræfingu. raddleysið er afleyðing gærkvöldsins þar sem ég sat á ýmsum skemtistöðun borgarinnar og var að reyna að halda uppi samræðum við fólkið sem að ég var að tala við. ég þurfti að öskra til þess að yfirgnæfa misgóða tónlistina. það er vika og 3. des eftir af skólanum. það er stuð. svo byrja prófin sem að er ennþá meira stuð. tónleikar kórsins eru 2. des í fríkirkjuni kl 20.00. allir velkomnir. já og ef að ég byrja allt í einu að raula jólalög plís ekki lemja mig, ég er búin að vera að æfa jólallög síðan í enda október, þetta er orðið innprentað í hausinn minn. vá hvað mér er illt í hálsinum!!! góð ráð MJÖG vel þegin! ég er flutt inn í íbúðina mína, héreftir alltaf kölluð Holan. það er mjög kósí. mig vantar samt bókaskáp. bækurnar mínar eru bókstaflega út um allt.

Skoðannaleysi virðist þjá þjóðinna!


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 19:26:42 / huvra

epli,epli,epli og aftur epli

Í dag er Epladagurinn. Sem þýðir að það er eplaball í kvöld og jú þessi vika er víst eplavikan. En er ég búin að fá epli í dag? Eða kaupa miða á ballið, hvað þá að fara á ballið? Svarið er því miður nei! Ég er veik heima hjá mér með hor í nös. Langaði bara að deila þessu með ykkur.

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 22:08:47 / huvra

pff!

í dag, samkvæmt síðuteljaranum, hafa 8 mans kíkt inn, já það er föstudagur í dag, ooog fyrst að þessir 8 manns höfðu fyrir því að slá inn slóðina á síðuni af hverju gátu þeir þá ekki haft fyrir því að láta viðta af sér eða segja hæ! eeen nei það virðist vera of erfitt að segja hæ við mann.

er virkilega að hugsa um að taka aftur upp tveggja kommenta regluna...

frekar skúffuð sko! 


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.10.2007 14:54:17 / huvra

___

Bloggskortur hefur undanfarið verið töluverður. Ástæðan er líkast til hrein og tær leti. Og líka það að það virðist enginn lesa þetta ólukkans blog mitt. Að misnta kosti hef ég ekki orðið vör við neinn umgang.

Vinnan bætir mannin. Já akkúrat. Það er svo gaman að sitja einn og gera ekki neitt á milli þess sem að maður afgreiðir miskurteist fólk um gjafabréf. Einstaka sinnum skítur þó upp kunnulegu andliti og þá liftist örlítið á manni brúnin. Það ertu 10 dagar til mánaðamóta.

Í kvöld verða mér afhent lyklavöld af íbúð einni í Breiðholtinu. Þannig a ég þarf að halda áfram að pakka niður og svo upp dótinu mínu. Það er altaf mjög skemtilegt.

Fyrir miðvikudaginn þarf ég að lesa bók, gera fyrirlestur og skrifa leikþátt. (Jukk kaffið mitt er orðið kalt.) Það er altef nóg að gera...


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.09.2007 13:50:37 / huvra

góðann daginn, get ég aðstoðað?

Hugrún Lilja er semsagt komin með vinnu...

Hún starfar sem aukamanneskja á þjónustuborðinu í Kringluni. Hún selur gjafabréf, strætókort, frímerki og ýmiskonar nauðsinjar. Þess á milli sem að hún skemtir sér við það að afgreiða þá kíkir hún á undur veraldarvefsins. Sem að eins og ávalt er mjög áhugavert...


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.09.2007 23:17:54 / huvra

rass, pass. skass, hlass, hass, krass, ööö...eee

ég er þreytt

mig langar að fara að sofa

held að ég fari að sofa

finnst það mjög sniðugt

ég held að ég sé pínu  skotin í strák

ég er EKKI að fara að segja ykkur hver það er

Ester lendir eftir rúman sólarhring

ég veit fyrir víst að ég á eftir að öskra á mánudaginn

the importance of being earnest er skemtileg

the birds verður áhugaverð

ég er að fá bólu á nefið

"oversharing"  hugsið þið líklega

svefn

ást

hamingja

lærdómur

heimatilbúinn burido

sofa... 


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.08.2007 22:29:33 / huvra

ó maría mig langar heim,,,

í dag er ekki sunnudagur eins og að ég var næstum búin að skrifa, en hey það er víst föstudagur. Þrír skóladagar búnir og en er ég á lífi. en nú er framundan heil helgi full af gleði og guma. iiiin ég veit ikki hvað ég á að gera þannig að ég reyni að finna mér e-ð gáfulegra að gira.

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 11:11:19 / huvra

hér kem ég

Jæja skólasetningin er í dag. Svo er fyrsti skóladagur á morgun. Ég kem í bæinn eihvertíman eftir hádegi. Þuð getið þess vegna farið og mist ykkur úr gleði :D

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.08.2007 12:06:56 / huvra

Stundataflan mín

3.FS

Mánudagur

Þriðjudagur

Miðvikudagur

Fimmtudagur

Föstudagur

8:10 – 9:10

Enska 473

U1

 


Enska

U6

Saga

U5

 


9:20 – 10:20

Enska 473

U1

Enska 473

A8

Franska

N4

Íslenska

U4

Franska

N3

10:30 – 11:30

Enska

A7

 


Íslenska

U7

Félagsfræði

U6

Enska

A7

11:30 – 12:00

M

A

T

U

R

12:00 – 13:00

Saga

A7

Franska

U3

 


Franska

U8

 


13:10 – 14:10

Íslenska

N1

Íslenska

U2

Félagsfræði

A8

Enska

A7

Saga

U5

14:20 – 15:20

Félagsfræði

A9

 


Saga

A7

Enska 473

U5

 


15:30 – 16:30

Félagsfræði

A9

 


 


 


 


 

 


 


 


 


 


 



» 3 hafa sagt sína skoðun

12.08.2007 15:40:18 / huvra

komin heim

jæja þá er ég komin heim frá Tyrklandi. Ég verð bara að segja að það var brjálæðislega gaman. Mig langaði bara ekkert til þess að fara aftur heim á klakann. Verð samt að viðurkenna að það var nokkuð gott að komast heim. Þar sem að má drekka vatbeint úr krananum, henda klósettpappír í klósettið, maður þarf ekki að bera sólarvörn á hvern einasta bera blett á líkamanum og maður svitnar ekki eins og eithver skepna. Sakna samt Marmaris og skentilega fólksins sem að ég kyntist þar. Ég veit að eithvern langar í ferðasögu. Ég er að ákveða hvort að ég eigi að láta verða af því... jú ok kanski eina stutta.

Ég fór til Marmaris á Tyrklandi. Það er um 14 tíma ferðalag þangað heimanað frá mér og að hótelinu sem að ég kallaði heimili í tvær vikur. Lenti á flugvellinum í Dalama og tók rútu til Marmaris. Ég hélt að ég myndi deyja svona 10 sinnum á leiðinni því að tyrkir kunna alls ekki að keyra!!! Nenni ekki að segja ykkur nákvæmlega hvað ég gerði á hverjum degi (kanski aðalega af því að ég man bara alls ekki hvað ég gerði suma dagana!). Get samt sagt ykkur að ég eyddi nokkrum kvöldum á barstræti þar sem að var dansað, reyktar vatnspípur og heft geggjað gaman. Svo var nokkrum kvöldum eytt á hótelbarnum þar sem að það var daðrað. Og enn öðrum kvöldum var eytt í eithverju herberginu í eithverju skemtilegu flippi. Ég verð líka að viðurkenna að ég eyddi alveg heilum degi í ekkert sökum þynku. Ég fór í siglingu þar sem að það var svamlað í stærstu sundlaug heimsins, já rétt, sjónum. Náði mér meirasegja í sólbruna í það skiptið. Einum degi var eytt á ströndinni þar sem að ég fékk einn besta ís sem að ég hef smakkað. Öðrum degi var eytt í þorpsferð þar sem að maður fékk innsín í tyrkneska menningu. Öðrum dögum var einfaldlega eytt í leti og það að eyða peningum í gagnslaust glingur á marköðum og bazörum. Ég eignaðist nokkra ágætis vini og þurfti svo að fara aftur heim allt of fljótt.

Núna er ég drulluþreytt og svöng í vinnuni þar sem að það er ekkert að gera svona til tilbreytigar. Skólinn byrjar eftir 10 daga, skólasetning eftir 9. Ég held að Emma komi heim í dag og vonsat tilað fá skemtilega símhringingu frá henni þar sem að við skiptumst á ferðasögum. Svo kemur Ester heim í byrjun september og þá verður stuið!!!

Ég er að leita mér að íbúð. Það er ekki að ganga eins vel og að ég vildi að það gengi. Fæ að sofa á sóffanum hjá systur minni þangað til að ég finn mér samastað.

En núna held ég að það sé kominn tími á matarleit...


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7